02.06.2006 21:25:56 / BARAHLIN

Lífið í Lundúnarborg.

Loksins læt ég verða að því að blogga, ástæðan er sú að ég sit núna í lobbíinu með stóran latte útaf því að þessir foxxings indverjar í næsta herbergi eru ekki að fara leint með sitt vonda hjónaband og það líður að því að þau drepi hvort annað af háfaðanum að dæma jiiisssús........... Búðin sem ég er í manager þjálfun er á Oxford street og það þýðir bara eitt GEÐSÝKI, vá hvað er til mikið að fólki. Fólk er allavega duglegt að fjölga sér hérna í London. Annars gengur voða vel og ég er að vinna nánast allann sólahringinn þannig að ég er ekkert á neinu standandi balli hérna. Það eru 95 % karlmenn að vinna með mér en því miður eru þeir fyrir hitt kynið þannig að það lítur ekki mikið út fyrir að ég sé með deit í vinnunni. Síðan er ég kölluð Pála af því að enginn getur sagt nafnið mitt enda er ég ekki að fara framm á það þar sem ég er ekki að fara að vinna með þessum elskum lengur en út júní......... Ég ætlaði nú að fara að vesla í gær, ætlaði að vesla fullt en ekki varð mikið úr því mér fór bara að svima af öllum þessum búðum og fólki....... Jæja ég ætla að fara upp aftur og gá hvort parið sé ekki farið að elska friðinn.. Ég elskann allavega.

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 21:33:58 / BARAHLIN

Bissíkrissí.

Þó svo að ég nenni essu ekki í bloggheiminum þá ætla ég allavega að sína smá lit í tilefni dagsins........ Yngsti sonur bæjarkóngsins vildi verða högg er yrði hann stór, hann gerði sínar kynferður og eith útí eyðilöndin fór. Drottningin hefur djúsað útfrá því, valíum briður og ærís þammbar endalaust dududu. Með vottorð í leikfimi skoða ég bæinn minn dududu, með vottorð í leikfimi skoða ég bæinn minn......... Þvílíkur snillingur sem maðurinn er.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 22:09:49 / BARAHLIN

Hamingjuspor..

Eftir að hafa verið mikið nirði uppá síðkastið hef ég fengið aldeils himnasendinGAR síðustu daga. Allt virðirst vera að ganga upp í mínu lífi og meira en ég bið um. Ég var farin að hafa áhyggjur af nánast öllu einsog t,d skóli, flutningum, vinnumálum, íbúðarmálum og jafnvel ástarmálum........... Meiri útskýringar á þessu öllu síðar.... Lifið í gleðinni gott fólk. Það margborgar sig.......

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 16:10:03 / BARAHLIN

Elskulegir nágrannar..

Ég er svo mikið búin að tala um nágranna mín hérna á blogginu síðan ég kom í ágúst að ég held að það sé kominn tími á smá útskýringu þegar svona lítið er eftir...... Eftir allt saman er ég farin að líta góðum augum á nágranna mína og finnst þau æði. Eitt er ábyggjilegt að þau eru ekki einsog fólk er flest og það gerir þau bara fyndin........... Julia er stelpa sem býr hérna næstum við hlið mér. Hún er afar frjálslega vaxin stúlka og ég held að hún eigi við alvarleg geðræn vandarmál að stríða. Julia skildi einu sinni eftir ruslið fyrir utan íbúðina sína í einn mánuð og það eru eingvar ýkjur, ,,ég var alveg að fara að labba yfir til hennar þegar allt ruslið hennar var fokið til mín og segja henni að drulla sér með ruslið en þá eftir einn mán gerði hún það. Julia á kærasta sem er gúnga að hæðsta stigi sem kemur hingað um helgar og er alltaf jafn hress en Julia urrar á mann í margar vikur en síðan alltíeinu krossbregður manni því Julia er hressasta manneskja í heimi og heilsar einsog hún sé að hitta ég veit ekki hvern.............. Einu sinni hef ég flutt mig um íbúðarlengju vegna þess að þá bjó ég við hlið dópsala og teknópartýsgæja og það var frekar vond tilfining. Þegar loks var búið að leifa bárunni að flytja í aðra lengju flutti við hlið mér gæji sem var með íbúðina til báðarbyrgðar því að hann var nýkominn úr fangelsi.. Hann greyjið er svosem ágætur meðan hann lætur mig vera..........Gæjinn sem býr mér að vinstri hönd er feiminn, skrítinn eða þunglyndur hann er búin að búa í rassgatinu á mér í næstum heilann vetur en er ekki enn farinn að heilsa þó svo að ég hafi gert heiðarlega tilraun nokkrum sinnum. Neibb ekki orð frá kauða, hann á þrjú hjól og einn bíl og skyptirr reglulega milli þessa farartækja. Það fer nú ekki mikð fyrir þessu greyji en eitt veit ég að hann hefur ansi mikil mök við sjálfan sig sem er ekkert rosalega hressandi fyrir mig........... ..Einn gaur sem býr hérna sem fær mig alltaf til að hlæja , hann á eldgamlann bíl sem er búið að bæta öllum helstu aukahlutum við , hann er voða kúl á hverjum degi að þrýfa flotta bílinn sinn með háþrýstidælu. Nei sko þetta eru aftur ekki ýkjur hann er með háþrýstidæluna á gamla bílum sínum mörgum sinnum í viku............... Ég hætti ekki fyrr en ég nefni þvottrstrákinn. Hann er yndislegur,,,, mættur með þvottarefnið sitt og mýkingarefnið í þvottarhúsið og er bara að þvo allann daginn. Hann er ALLTAF þar þegar ég þvæ og ég meina alltaf, með sætu körfuna sína.... Ég læt þetta gott heita með nágranna mína. Guð blessi lýðinn á Faaborgvej 90.

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 21:14:26 / BARAHLIN

Helvxxxx væl.

Sko nú er vetrafrí í skólanum mínum í viku, og því fylgir ekkert mikil spenna. Langt síðan að ég hef vælt yfir fríi. En að vera hérna í Svendborg að gera ekkert nema að bora í nefið og bíða eftir að tíminn líði er ekki skemmtilegt ástand. Volæði virtist vera að ná tökum á mér seinustu daga af því að ég gersamlega sá bara ekkert jákvætt við að vera að hanga hérna skoða einh blogg hjá fólki sem er nákvæmlega ekki inní mínu lífi fyrir fimm aura. Það finnst mér afar sorglegt ef ekkert er hægt að gera annað við tímann en að vafra endalaust á þessum blessaða veraldarvef... Ólympíuleikarnir eru að gera mig líka afar geðsjúka, danir virðast ekki neitt betra að gera þessa dagana en að sýna frá einh íþróttum sem ég kannast ekki við og hvað þá kann reglurnar... Mér er líka búið að vera kalt núna í svona ca tvær vikur í þessum raka hérna og virðist ekkert vera að fara að ná mér í hita... Að sökum þess er ég ekki að sjá mér fært um að vera að hjóla( vel á minnst náði að redda lásnum) útí búð og kaupa þó ekki nema nauðsinjavörur. Ég er t,d ekki búin að eiga klósettpappír í nokkra daga og er að verða búin með spariservétturnar mínar. Allt er tómt eina sem er til í ísskápnum er hunang, smjör og mjók í kaffið og í skápnum er til aspaspakkasúpur sem er alveg að verða búin... Ég nenni ekki að leggjast á fjórar fætur til að þrýfa gólfið hérna (á ekki riksugu) þó svo að laungu sé orðið tímabært. Síðan hugsaði ég með mér hver skeit eginlega í hausinn á mér. Ég er í volæði yfrir einh smáatriðum sem er sennilega auðveldast í heimi að kippa i liðinn.... Nú held ég að hugur minn sé ansi mikið kominn til íslands í lúxuslífið, riksugu, bíl, rúmið mitt, fötin mín, skóna mína, famelíuna mína, vini mína, heita pottinn og hvað og ekki hvað...... En síðan fékk ég góðar fréttir og var beðin að vinna á húsgagna/búsáhalda sýningu um helgina þannig að ég hef eith skemmtilegt fyrir stafni og ég er mikið að hugsa um að steinhætta þessu volæði........

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 02:13:44 / BARAHLIN

myndir frá arhus.

Eva dögg er búin að setja frekar fyndnar myndir frá fös.. síðan hennar er hérna til hliðar..

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 16:07:56 / BARAHLIN

Sérviskupunktar..

Það er víst búið að skora á mig í að segja nokkra sérviskupunkta um sjálfa mig. 1. Ég er kertafrík og verð að kveikja á kertum/kerti á hverju kveldi. 2. Ég er mjög sérvisk á mat og borða alltaf það sama svona í tvær vikur þangað til ég fæ ógeð og breyti til. Í vetur hef ég t,d fengið æði fyrir lax með kókósmjólk, hakki með avókadó og súrum gúrkum og makríl fisk með rúgbrauði. 3. Ég er með lygtarfóbíu að hæðsta stigi. Og nota mikið af ilmkertum og ilmvötnum. 4. Ég á það til að verða mjög kærulaus en á hinn bóginn með mjög mikla fullkomnaráráttu á sumt. 5. Ég verð alltaf að hafa tíma til að vera bara með sjálfum mér. Annars finnst mér ég vera að kafna. Ég skora á alla uppjgafabloggara sem ég þekki.

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 20:12:43 / BARAHLIN

Áfram með teknófjörið...

Ég hef orðið vör við það seinustu daga að nágrannar mínir hafa fundið epillurnar sínar og tónlistina í takt. Stanslaust teknópartý er núna búið að standa yfir í tvær vikur mér til mikills ama. Mér er svosem skítsama hvað þetta fólk er að taka inn eða gera, þetta er nú einu sinni þeirra val og líf. En ef á að halda standandi partý þá er nú alltílagi að spila eith almennilegt.... Ég get nú heldur ekki sagt annað en að ég sé smá stressuð að vera á ferli þegar þessi lýður er nánast inni hjá mér. En það sem heldur í mér voninni að komast ósködduð frá þessu umhverfi eru tvær heimsóknir sem ég er að fá í þessum mánuði auk þess að vera að fara að vinna í Arhus í viku. Fyrst kemur vinur minn frá Svíþjóð á fimmtudaginn svo fer ég til Arhus á sunnudaginn en er ekki enn búin að fá að vita hjá hvaða fyrirtæki ég er að fara að vinna hjá sem ég fíla illa. Síðan eftir það ætlar Karin að koma til mín í heimsókn. Líf mitt hefur ekki verið áhyggjulaust að undarnförnu. Margt að hugsa um, gera og græja. Jújú það sem er líka mikið að stressa mig er þessi blessaða óvissa í lífi mínu. Eftir rúmann mánuð veit ég ekkert hvað ég verð að gera eða hvar ég á eftir að búa. Lítil matalyst og lítill svefn eru einkunnarorð mín þessa dagana en ég vona nú að ég fari að róast og hætta að stressa mig yfir öllu.... Annars á ég eftir að enda í þessu teknópartý.

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 20:40:21 / BARAHLIN

:D

SMIL OG VÆR GLAD FOR HVER DAG SOM GAAR, SA SKAL DU SE HVOR MANGE VENNER DU FAAR !!!! Norskur málsháttur sem ég fékk að gjöf. Þessi kveðja gladdi mig mikið..

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 22:05:21 / BARAHLIN

Kids with guns...

Það er ekki gott að vera svona einsog ég er núna. Bara held að blekið sé búið í pennanum og bara kem ekki neinu á þetta blessaða blogg...... Bara svona svo ég taki leiðinlega og innihaldslitla sögu um sjálfan mig þá er ég á fullu í skólanum og held stundum á köflum að ég sé að missa það. Af því að mér finnst þetta bara pínu erfitt eða kannski bara kalla það mikil vinna en þetta er nú að verða búið. Sem er ekki neitt spes hjá mér þessa dagana af þvi ég get ekki ákveðið mig hvað ég á að gera, búa hér eða á íslandi. Verð bara frekar dofin þegar ég hugsa um þetta sem gerir mér erfiðara að taka ákvarðanir. En ég er síður en svo að fara að tapa gleðinni af því að einn vinur minn sagði einu sinni við mig Bára það reddast alltaf allt. Vel mælt það............... Seinustu dagar hafa verið frekar kaldir eða meira svona uppí -20 stiga frost á nóttunum með raka og öllu tilheyrandi. Þannig að það er ekkert spes að hjóla skrilljón km á dag í þessum kulda....... Seinustu helgi fór ég aftur til Svíþjóðar og afmæli á laugardagskveldinu hjá karin. Frekar fyndin helgi þó svo ég fari ekkert djúpt í að segja frá því........ Frammundan.... Skóli, Sjónvarp, talfan og kannski ræktin ef ég nenni að hjóla. Og ekki má gleyma því að ég er að fara að vinna í Arhus í næsta mánuði þar sem hún soffia var svo elskuleg að bjóða mér samastað... Annars held ég að það sé kominn tími á að ég fari að smakka eith á þessum ódýra bjór. Ég er barasta ekkert að notfæra mér það að bjórinn sé ódýr..bh í dk .

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 18:18:31 / BARAHLIN

Stjörnubára.

Þeim sem finnst ég skrítin hafa fullkomnan rétt á því. Ég á það til að hella mér útí eith sem fólk vanalega gerir ekki einsog t,d ilmkjarnaolíur/blómadropa og stjörnuspeki. Ég er afar ágeng á að spyrja fólk í hvað stjörnumerki það er . Sem er farið að skila sér.. Ég er búin að vera seinustu daga að reikna út hverskonar stjörnumerki eru í kringum mig. Útkoman var sú að krabbar og steingeitur eru mest í kringum mig og þar á eftir kemur meyjan. Minnst þekki ég af fólk í sporðdrekanum, vatnsberanum og nautinu... Magnað max ég er bara búin að reikna þetta út og ég tók allt fólk sem ég þekki inní þetta. Eða þá meina ég fólk sem ég hef verið mikið með og er mikið með, fjölskylduna og aðra vini. Fann það líka út að yfir ævi mína hef ég alltaf laðast að karlmönnum sem eru fæddir yfir sumartímann þó svo að það sé að breytast hjá mér því ég er í fyrsta skipti skotin í strák sem er fæddur yfir vetratímann. Ég á nú líka vini í öðrum merkjum einsog t,d fisknum en ekki eins mikið og hinum þremur. jjjiii nú þegar ég fer að hætta þessu bulli hvað ætli komi þá? Ég fer kannski bara að spá í genum á fólki eða eith.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 13:28:49 / BARAHLIN

Hvað get ég svosem sagt.

Ég er ein tilfiningaleg klessa þessa dagana. Jamm verð búin með skólann minn í mars og mars er á morgunn. Hvað tekur þá við ????? Vinna á ísl eða í dk. Og hvað ? Er ég að fara að vinna við það sem ég er búin að læra eða er ég að fara að vinna í Bónus og segja næsti gjörðusvo vel, villtu poka? Fara svo seinnipart dagsins og safna kerrum. Nei er það (þó svo að ég beri fulla virðingu fyrir þeim sem vinna við það). Hvað á ég að sækja um? Vinnu hjá stórverslunum, tímaritum eða fara sjálf í litlar búðir og reyna sannfæra kaupmenn um getu mína. Fyrir þá sem vita ekki þá get ég fengið vinnu við fleirra en að stilla útí glugga. Nú er bara komið að mér að fara að láta fara fyrir mér, frekjast og sleikja mann og annann upp. En hugurinn minn er útum allt.. einsog núna langar mig svo að fara að flytja inn til íslands frönsk ilmkerti og sápur auk þess að opna mína eigin búð. Hvað verður það svo á morgunn? Þá langar mig örugglega að flytja til afríku eða eith. Annars þá fer svona óvissa mjög mikið í jafnvægið á mér. Mér finnst best að hafa föst plön og hnitmiðuð markmið. Sem er ekki hjá mér í augnablikinu. Kannski fer ég bara að læra meira einsog sumir læra bara endalaust og eru svo hundgamlir og vita ekkert hvað á að gera við líf sitt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 17:46:59 / BARAHLIN

Þetta gengur ekki..

Hvað er þetta með mig ? Ég bara er að verða uppgjafabloggari. Nei ég læt það ekki koma fyrir.... Af mér er allt fínt að frétta, byrjuð ný verk. í skólanum. Núna er ég bara í því að innrétta verslanir frá grunni og í eith svona hagfræða rugli sem ég hálfpartinn er ekki að skilja, útreikningar eiga ekki við mig og hvað þá á dönsku en ég vona nú og held að ég eigi eftir að bjarga rassgatinu á mér. Það er nú svosem ekki stórt þannig að................. Annað, foreldrar mínir voru í heimsókn um helgina og það var æðislegt. Ég er búin að sársakna þeirra síðan þau fóru....... Núna er ég komin með super nintendo þannig að ég er einsog lítill krakki í tölfunni alla daga :) ...... Já árið 2005 í stuttu.. varð nýbúi. Kynntist skemmtilegu og leiðinlegu fólki. fór til Berlínar, Spánar og Svíþjóðar (nátt dk líka). Var prímadonna í sumar og vann ekkert. Lenti í skemmtilegum og leiðinlegum ástarævintýrum. Varð blakkát í Berlín. Varð ein af 14 til að komast inní skólann minn af 250 umsækjendum. Keypti mér alltof mikið af dóti og fötum á árinu (samt allt hræódýrt). Varð mac eigandi á árinu. Varð feit og mjó aftur á árinu. Klippti nánast af mér allt hárið á árinu en er aftur að verða sítt. Fór oft að hlæja á árinu og líka gráta..... Þannig var nú 2005 bh í dk.

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 21:31:07 / BARAHLIN

djö drasl..

Var búin að gera ritgerð um hvað ég gerði á árinu 2005.. en hvissbassbúmm hvarf.. ég geri það aftur þegar ég er búin að jafna mig á pirringnum yfir þessu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 20:16:35 / BARAHLIN

Gleðilega gleði..

Ég er komin til lífs aftur eftir hundruðir gramma af steikum, brúnuðum kartefla og sósu.. Mikið var ljúft að vera í faðmi fólksins í lífi mínu yfir hátíðirnar þó svo að afa Jens og Báru ömmu var sárt saknað....En samt er gott að vera aftur komin í til dk. Ákvað að eyða helginni í Svíþjóð. Sem er búið að vera voða fínt kalt samt sem áður, ég meira að segja fór á listasýningu Ólafs Elíassonar  í dag.  Má ekki glata listakonunni í sjálfri mér......... Ég kveð að sinni og hlakka til að blogga á nýju ári. bh í dk eða isl eða sve.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7