17.01.2006 13:28:49 / BARAHLIN

Hvað get ég svosem sagt.

Ég er ein tilfiningaleg klessa þessa dagana. Jamm verð búin með skólann minn í mars og mars er á morgunn. Hvað tekur þá við ????? Vinna á ísl eða í dk. Og hvað ? Er ég að fara að vinna við það sem ég er búin að læra eða er ég að fara að vinna í Bónus og segja næsti gjörðusvo vel, villtu poka? Fara svo seinnipart dagsins og safna kerrum. Nei er það (þó svo að ég beri fulla virðingu fyrir þeim sem vinna við það). Hvað á ég að sækja um? Vinnu hjá stórverslunum, tímaritum eða fara sjálf í litlar búðir og reyna sannfæra kaupmenn um getu mína. Fyrir þá sem vita ekki þá get ég fengið vinnu við fleirra en að stilla útí glugga. Nú er bara komið að mér að fara að láta fara fyrir mér, frekjast og sleikja mann og annann upp. En hugurinn minn er útum allt.. einsog núna langar mig svo að fara að flytja inn til íslands frönsk ilmkerti og sápur auk þess að opna mína eigin búð. Hvað verður það svo á morgunn? Þá langar mig örugglega að flytja til afríku eða eith. Annars þá fer svona óvissa mjög mikið í jafnvægið á mér. Mér finnst best að hafa föst plön og hnitmiðuð markmið. Sem er ekki hjá mér í augnablikinu. Kannski fer ég bara að læra meira einsog sumir læra bara endalaust og eru svo hundgamlir og vita ekkert hvað á að gera við líf sitt.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.