Lífið í Lundúnarborg.
í lobbíinu með stóran latte útaf því að þessir foxxings indverjar í
næsta herbergi eru ekki að fara leint með sitt vonda hjónaband og
það líður að því að þau drepi hvort annað af háfaðanum að dæma
jiiisssús........... Búðin sem ég er í manager þjálfun er á Oxford
street og það þýðir bara eitt GEÐSÝKI, vá hvað er til mikið að
fólki. Fólk er allavega duglegt að fjölga sér hérna í London.
Annars gengur voða vel og ég er að vinna nánast allann sólahringinn
þannig að ég er ekkert á neinu standandi balli hérna. Það eru 95 %
karlmenn að vinna með mér en því miður eru þeir fyrir hitt kynið
þannig að það lítur ekki mikið út fyrir að ég sé með deit í
vinnunni. Síðan er ég kölluð Pála af því að enginn getur sagt
nafnið mitt enda er ég ekki að fara framm á það þar sem ég er ekki
að fara að vinna með þessum elskum lengur en út júní......... Ég
ætlaði nú að fara að vesla í gær, ætlaði að vesla fullt en ekki
varð mikið úr því mér fór bara að svima af öllum þessum búðum og
fólki....... Jæja ég ætla að fara upp aftur og gá hvort parið sé
ekki farið að elska friðinn.. Ég elskann allavega.
Bissíkrissí.
sína smá lit í tilefni dagsins........ Yngsti sonur bæjarkóngsins
vildi verða högg er yrði hann stór, hann gerði sínar kynferður og
eith útí eyðilöndin fór. Drottningin hefur djúsað útfrá því, valíum
briður og ærís þammbar endalaust dududu. Með vottorð í leikfimi
skoða ég bæinn minn dududu, með vottorð í leikfimi skoða ég bæinn
minn......... Þvílíkur snillingur sem maðurinn er.
Hamingjuspor..
aldeils himnasendinGAR síðustu daga. Allt virðirst vera að ganga
upp í mínu lífi og meira en ég bið um. Ég var farin að hafa
áhyggjur af nánast öllu einsog t,d skóli, flutningum, vinnumálum,
íbúðarmálum og jafnvel ástarmálum........... Meiri útskýringar á
þessu öllu síðar.... Lifið í gleðinni gott fólk. Það margborgar
sig.......
Elskulegir nágrannar..
ég kom í ágúst að ég held að það sé kominn tími á smá útskýringu
þegar svona lítið er eftir...... Eftir allt saman er ég farin að
líta góðum augum á nágranna mína og finnst þau æði. Eitt er
ábyggjilegt að þau eru ekki einsog fólk er flest og það gerir þau
bara fyndin........... Julia er stelpa sem býr hérna næstum við
hlið mér. Hún er afar frjálslega vaxin stúlka og ég held að hún
eigi við alvarleg geðræn vandarmál að stríða. Julia skildi einu
sinni eftir ruslið fyrir utan íbúðina sína í einn mánuð og það eru
eingvar ýkjur, ,,ég var alveg að fara að labba yfir til hennar
þegar allt ruslið hennar var fokið til mín og segja henni að drulla
sér með ruslið en þá eftir einn mán gerði hún það. Julia á kærasta
sem er gúnga að hæðsta stigi sem kemur hingað um helgar og er
alltaf jafn hress en Julia urrar á mann í margar vikur en síðan
alltíeinu krossbregður manni því Julia er hressasta manneskja í
heimi og heilsar einsog hún sé að hitta ég veit ekki
hvern.............. Einu sinni hef ég flutt mig um íbúðarlengju
vegna þess að þá bjó ég við hlið dópsala og teknópartýsgæja og það
var frekar vond tilfining. Þegar loks var búið að leifa bárunni að
flytja í aðra lengju flutti við hlið mér gæji sem var með íbúðina
til báðarbyrgðar því að hann var nýkominn úr fangelsi.. Hann
greyjið er svosem ágætur meðan hann lætur mig vera..........Gæjinn
sem býr mér að vinstri hönd er feiminn, skrítinn eða þunglyndur
hann er búin að búa í rassgatinu á mér í næstum heilann vetur en er
ekki enn farinn að heilsa þó svo að ég hafi gert heiðarlega tilraun
nokkrum sinnum. Neibb ekki orð frá kauða, hann á þrjú hjól og einn
bíl og skyptirr reglulega milli þessa farartækja. Það fer nú ekki
mikð fyrir þessu greyji en eitt veit ég að hann hefur ansi mikil
mök við sjálfan sig sem er ekkert rosalega hressandi fyrir
mig........... ..Einn gaur sem býr hérna sem fær mig alltaf til að
hlæja , hann á eldgamlann bíl sem er búið að bæta öllum helstu
aukahlutum við , hann er voða kúl á hverjum degi að þrýfa flotta
bílinn sinn með háþrýstidælu. Nei sko þetta eru aftur ekki ýkjur
hann er með háþrýstidæluna á gamla bílum sínum mörgum sinnum í
viku............... Ég hætti ekki fyrr en ég nefni þvottrstrákinn.
Hann er yndislegur,,,, mættur með þvottarefnið sitt og
mýkingarefnið í þvottarhúsið og er bara að þvo allann daginn. Hann
er ALLTAF þar þegar ég þvæ og ég meina alltaf, með sætu körfuna
sína.... Ég læt þetta gott heita með nágranna mína. Guð blessi
lýðinn á Faaborgvej 90.
Helvxxxx væl.
mikil spenna. Langt síðan að ég hef vælt yfir fríi. En að vera
hérna í Svendborg að gera ekkert nema að bora í nefið og bíða eftir
að tíminn líði er ekki skemmtilegt ástand. Volæði virtist vera að
ná tökum á mér seinustu daga af því að ég gersamlega sá bara ekkert
jákvætt við að vera að hanga hérna skoða einh blogg hjá fólki sem
er nákvæmlega ekki inní mínu lífi fyrir fimm aura. Það finnst mér
afar sorglegt ef ekkert er hægt að gera annað við tímann en að
vafra endalaust á þessum blessaða veraldarvef... Ólympíuleikarnir
eru að gera mig líka afar geðsjúka, danir virðast ekki neitt betra
að gera þessa dagana en að sýna frá einh íþróttum sem ég kannast
ekki við og hvað þá kann reglurnar... Mér er líka búið að vera kalt
núna í svona ca tvær vikur í þessum raka hérna og virðist ekkert
vera að fara að ná mér í hita... Að sökum þess er ég ekki að sjá
mér fært um að vera að hjóla( vel á minnst náði að redda lásnum)
útí búð og kaupa þó ekki nema nauðsinjavörur. Ég er t,d ekki búin
að eiga klósettpappír í nokkra daga og er að verða búin með
spariservétturnar mínar. Allt er tómt eina sem er til í ísskápnum
er hunang, smjör og mjók í kaffið og í skápnum er til
aspaspakkasúpur sem er alveg að verða búin... Ég nenni ekki að
leggjast á fjórar fætur til að þrýfa gólfið hérna (á ekki riksugu)
þó svo að laungu sé orðið tímabært. Síðan hugsaði ég með mér hver
skeit eginlega í hausinn á mér. Ég er í volæði yfrir einh
smáatriðum sem er sennilega auðveldast í heimi að kippa i
liðinn.... Nú held ég að hugur minn sé ansi mikið kominn til
íslands í lúxuslífið, riksugu, bíl, rúmið mitt, fötin mín, skóna
mína, famelíuna mína, vini mína, heita pottinn og hvað og ekki
hvað...... En síðan fékk ég góðar fréttir og var beðin að vinna á
húsgagna/búsáhalda sýningu um helgina þannig að ég hef eith
skemmtilegt fyrir stafni og ég er mikið að hugsa um að steinhætta
þessu volæði........
myndir frá arhus.
hennar er hérna til hliðar..
Sérviskupunktar..
sjálfa mig. 1. Ég er kertafrík og verð að kveikja á kertum/kerti á
hverju kveldi. 2. Ég er mjög sérvisk á mat og borða alltaf það sama
svona í tvær vikur þangað til ég fæ ógeð og breyti til. Í vetur hef
ég t,d fengið æði fyrir lax með kókósmjólk, hakki með avókadó og
súrum gúrkum og makríl fisk með rúgbrauði. 3. Ég er með lygtarfóbíu
að hæðsta stigi. Og nota mikið af ilmkertum og ilmvötnum. 4. Ég á
það til að verða mjög kærulaus en á hinn bóginn með mjög mikla
fullkomnaráráttu á sumt. 5. Ég verð alltaf að hafa tíma til að vera
bara með sjálfum mér. Annars finnst mér ég vera að kafna. Ég skora
á alla uppjgafabloggara sem ég þekki.
Áfram með teknófjörið...
fundið epillurnar sínar og tónlistina í takt. Stanslaust teknópartý
er núna búið að standa yfir í tvær vikur mér til mikills ama. Mér
er svosem skítsama hvað þetta fólk er að taka inn eða gera, þetta
er nú einu sinni þeirra val og líf. En ef á að halda standandi
partý þá er nú alltílagi að spila eith almennilegt.... Ég get nú
heldur ekki sagt annað en að ég sé smá stressuð að vera á ferli
þegar þessi lýður er nánast inni hjá mér. En það sem heldur í mér
voninni að komast ósködduð frá þessu umhverfi eru tvær heimsóknir
sem ég er að fá í þessum mánuði auk þess að vera að fara að vinna í
Arhus í viku. Fyrst kemur vinur minn frá Svíþjóð á fimmtudaginn svo
fer ég til Arhus á sunnudaginn en er ekki enn búin að fá að vita
hjá hvaða fyrirtæki ég er að fara að vinna hjá sem ég fíla illa.
Síðan eftir það ætlar Karin að koma til mín í heimsókn. Líf mitt
hefur ekki verið áhyggjulaust að undarnförnu. Margt að hugsa um,
gera og græja. Jújú það sem er líka mikið að stressa mig er þessi
blessaða óvissa í lífi mínu. Eftir rúmann mánuð veit ég ekkert hvað
ég verð að gera eða hvar ég á eftir að búa. Lítil matalyst og
lítill svefn eru einkunnarorð mín þessa dagana en ég vona nú að ég
fari að róast og hætta að stressa mig yfir öllu.... Annars á ég
eftir að enda í þessu teknópartý.
:D
VENNER DU FAAR !!!! Norskur málsháttur sem ég fékk að gjöf. Þessi
kveðja gladdi mig mikið..
Kids with guns...
blekið sé búið í pennanum og bara kem ekki neinu á þetta blessaða
blogg...... Bara svona svo ég taki leiðinlega og innihaldslitla
sögu um sjálfan mig þá er ég á fullu í skólanum og held stundum á
köflum að ég sé að missa það. Af því að mér finnst þetta bara pínu
erfitt eða kannski bara kalla það mikil vinna en þetta er nú að
verða búið. Sem er ekki neitt spes hjá mér þessa dagana af þvi ég
get ekki ákveðið mig hvað ég á að gera, búa hér eða á íslandi. Verð
bara frekar dofin þegar ég hugsa um þetta sem gerir mér erfiðara að
taka ákvarðanir. En ég er síður en svo að fara að tapa gleðinni af
því að einn vinur minn sagði einu sinni við mig Bára það reddast
alltaf allt. Vel mælt það............... Seinustu dagar hafa verið
frekar kaldir eða meira svona uppí -20 stiga frost á nóttunum með
raka og öllu tilheyrandi. Þannig að það er ekkert spes að hjóla
skrilljón km á dag í þessum kulda....... Seinustu helgi fór ég
aftur til Svíþjóðar og afmæli á laugardagskveldinu hjá karin.
Frekar fyndin helgi þó svo ég fari ekkert djúpt í að segja frá
því........ Frammundan.... Skóli, Sjónvarp, talfan og kannski
ræktin ef ég nenni að hjóla. Og ekki má gleyma því að ég er að fara
að vinna í Arhus í næsta mánuði þar sem hún soffia var svo elskuleg
að bjóða mér samastað... Annars held ég að það sé kominn tími á að
ég fari að smakka eith á þessum ódýra bjór. Ég er barasta ekkert að
notfæra mér það að bjórinn sé ódýr..bh í dk .
Stjörnubára.
að hella mér útí eith sem fólk vanalega gerir ekki einsog t,d
ilmkjarnaolíur/blómadropa og stjörnuspeki. Ég er afar ágeng á að
spyrja fólk í hvað stjörnumerki það er . Sem er farið að skila
sér.. Ég er búin að vera seinustu daga að reikna út hverskonar
stjörnumerki eru í kringum mig. Útkoman var sú að krabbar og
steingeitur eru mest í kringum mig og þar á eftir kemur meyjan.
Minnst þekki ég af fólk í sporðdrekanum, vatnsberanum og nautinu...
Magnað max ég er bara búin að reikna þetta út og ég tók allt fólk
sem ég þekki inní þetta. Eða þá meina ég fólk sem ég hef verið
mikið með og er mikið með, fjölskylduna og aðra vini. Fann það líka
út að yfir ævi mína hef ég alltaf laðast að karlmönnum sem eru
fæddir yfir sumartímann þó svo að það sé að breytast hjá mér því ég
er í fyrsta skipti skotin í strák sem er fæddur yfir vetratímann.
Ég á nú líka vini í öðrum merkjum einsog t,d fisknum en ekki eins
mikið og hinum þremur. jjjiii nú þegar ég fer að hætta þessu bulli
hvað ætli komi þá? Ég fer kannski bara að spá í genum á fólki eða
eith.
Hvað get ég svosem sagt.
skólann minn í mars og mars er á morgunn. Hvað tekur þá við ?????
Vinna á ísl eða í dk. Og hvað ? Er ég að fara að vinna við það sem
ég er búin að læra eða er ég að fara að vinna í Bónus og segja
næsti gjörðusvo vel, villtu poka? Fara svo seinnipart dagsins og
safna kerrum. Nei er það (þó svo að ég beri fulla virðingu fyrir
þeim sem vinna við það). Hvað á ég að sækja um? Vinnu hjá
stórverslunum, tímaritum eða fara sjálf í litlar búðir og reyna
sannfæra kaupmenn um getu mína. Fyrir þá sem vita ekki þá get ég
fengið vinnu við fleirra en að stilla útí glugga. Nú er bara komið
að mér að fara að láta fara fyrir mér, frekjast og sleikja mann og
annann upp. En hugurinn minn er útum allt.. einsog núna langar mig
svo að fara að flytja inn til íslands frönsk ilmkerti og sápur auk
þess að opna mína eigin búð. Hvað verður það svo á morgunn? Þá
langar mig örugglega að flytja til afríku eða eith. Annars þá fer
svona óvissa mjög mikið í jafnvægið á mér. Mér finnst best að hafa
föst plön og hnitmiðuð markmið. Sem er ekki hjá mér í augnablikinu.
Kannski fer ég bara að læra meira einsog sumir læra bara endalaust
og eru svo hundgamlir og vita ekkert hvað á að gera við líf sitt.
Þetta gengur ekki..
ég læt það ekki koma fyrir.... Af mér er allt fínt að frétta,
byrjuð ný verk. í skólanum. Núna er ég bara í því að innrétta
verslanir frá grunni og í eith svona hagfræða rugli sem ég
hálfpartinn er ekki að skilja, útreikningar eiga ekki við mig og
hvað þá á dönsku en ég vona nú og held að ég eigi eftir að bjarga
rassgatinu á mér. Það er nú svosem ekki stórt þannig
að................. Annað, foreldrar mínir voru í heimsókn um
helgina og það var æðislegt. Ég er búin að sársakna þeirra síðan
þau fóru....... Núna er ég komin með super nintendo þannig að ég er
einsog lítill krakki í tölfunni alla daga :) ...... Já árið 2005 í
stuttu.. varð nýbúi. Kynntist skemmtilegu og leiðinlegu fólki. fór
til Berlínar, Spánar og Svíþjóðar (nátt dk líka). Var prímadonna í
sumar og vann ekkert. Lenti í skemmtilegum og leiðinlegum
ástarævintýrum. Varð blakkát í Berlín. Varð ein af 14 til að komast
inní skólann minn af 250 umsækjendum. Keypti mér alltof mikið af
dóti og fötum á árinu (samt allt hræódýrt). Varð mac eigandi á
árinu. Varð feit og mjó aftur á árinu. Klippti nánast af mér allt
hárið á árinu en er aftur að verða sítt. Fór oft að hlæja á árinu
og líka gráta..... Þannig var nú 2005 bh í dk.
djö drasl..
hvissbassbúmm hvarf.. ég geri það aftur þegar ég er búin að jafna
mig á pirringnum yfir þessu.
Gleðilega gleði..
brúnuðum kartefla og sósu.. Mikið var ljúft að vera í faðmi
fólksins í lífi mínu yfir hátíðirnar þó svo að afa Jens og Báru
ömmu var sárt saknað....En samt er gott að vera aftur komin í til
dk. Ákvað að eyða helginni í Svíþjóð. Sem er búið að vera voða fínt
kalt samt sem áður, ég meira að segja fór á listasýningu Ólafs
mér......... Ég kveð að sinni og hlakka til að blogga á nýju ári.